top of page
Broddi lógó draft.png

BRODDI

Raddstýrðar fréttir - Ókeypis app.

Með Brodda-appinu flettir þú í gegnum fréttir og fréttatengt efni með íslenskum raddskipunum. Broddi er þinn persónulegi, raddstýrði fréttalesari og fæst ókeypis fyrir iPhone og Android.

Ef þú nennir ekki að hlusta á þá frétt sem hann er að lesa, þá segir þú bara "Broddi, næsta!"

Broddi í stuttu máli

Broddi í stuttu máli

RADDSTÝRT ÓLÍNULEGT ÚTVARP. LOKSINS!

Haffi ekur.png

ÞÚ STÝRIR FERÐINNI

Þú sækir þær fréttir sem þú vilt á þeim tíma sem þér hentar. Manstu þegar þú startaðir bílnum og heyrðir „...Fréttalestri er lokið" og þurftir svo að afplána vond lög í kjölfarið. Það er liðin tíð.

Gengur.png

HUGRÆNN LAUSAGANGUR

Renndu yfir fréttir þegar hendur og augu eru upptekin í öðru og þú ert í nokkurs konar hugrænum lausagangi,... að ganga, aka, hjóla, strauja, vaska upp og fleira.

IMG_1038.jpg

Á ÍSLENSKU MÁ ALLTAF FINNA RADDSKIPUN 

Okkur finnst mikilvægt að sporna gegn ógnunum sem steðja að íslensku í stafrænum heimi. Við byrjum smátt, á afmörkuðum þætti, en gerum það vel og veljum hágæðaefni frá RÚV.

Sími og heyrnatól.png

STYRKIR SAMSTARFIÐ

Broddi er samstarfsverkefni Brodda máltækni ehf., Háskólans í Reykjavík og Ríkisútvarpsins. Broddi hefur hlotið styrki frá Rannís, Velferðarráðuneytinu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þróun Brodda hófst í október 2017.

HVERNIG VIRKAR BRODDI?

Mundu þessi 4 mikilvægu atriði, þá mun margt fara vel.

ALLAR LEIÐBEININGAR INNI Í APPINU

Tannhjólið í appinu vísar þér á leiðbeiningarnar. Þar finnur þú þær 8 skipanir sem Broddi skilur og hvernig best er að nota Brodda. Þar finnur þú líka stillingar.

FYRST TENGJA - SVO KVEIKJA

Best er að nota heyrartól eða Bluetooth hátalara. Mundu að tengja fyrst hátalarann eða heyrnartólin áður en þú kveikir á Brodda

HLJÓÐBROT 1 AF 1

Ef það stendur "Hljóðbrot 1 af 1" við fréttaþáttinn þýðir það að hann er ekki klipptur niður. Þá virkar ekki skipunin "Broddi, næsta!" En allar aðrar skipanir virka

SLÖKKVA & KVEIKJA

Ef þér finnst Broddi hegða sér illa, er áhrifaríkast bara að slökkva og kveikja og mundu að slökkva alveg (swipe up) á forritinu eftir notkun til að spara batterí og gagnaflutning.

Leiðbeinignar - hljómfallið og inniröddin

Broddi skilur 9 skipanir

Broddi næsta! - Næsta frétt spilast

Broddi bíddu! - Lestur stöðvast

Broddi lestu! - Lestur hefst aftur

Broddi hvað sagðirðu? - Lestur bakkar um 5 sek.

Broddi áfram! - Lestur fer fram um 10 sek.

Broddi bakka! - Núverandi frétt byrjar aftur

Broddi hækka! - Hljóðstyrkur eykst

Broddi lækka! - Hljóðstyrkur lækkar

Broddi hættu! - App slekkur á sér.

BRODD-BORGARAR

Broddi máltækni ehf er eigandi Brodda

Jon%20Pall%20Leifsson_edited.jpg
jg138_edited_edited_edited.jpg
29572746_10156337099104390_8169913218206494327_n_edited_edited.jpg

JÓN PÁLL LEIFSSON

Markaðs- og kynningarmál

JÓN GUÐNASON

Stjórnarformaður

RÓBERT KJARAN

Yfirumsjón með forritun

HAFÐU SAMBAND

Takk fyrir póstinn

Screenshot (24).png

Heading 1

bottom of page